Navigation Menu+

Með blóði vættan góm – Vetrarhátíð í Reykjavík

Posted on Feb 20, 2013 by in Fréttir | 0 comments

RVK_LIT_sideminna_rgb1

Bókmenntadagskrá, ljósmyndasýning og frítt í bíó í Mögnuðu myrkri á Vetrarhátíð í Reykjavík

brother-spiritBókmenntaborgin Reykjavík og forlagið Rúnatýr bjóða upp á hrollvekjandi dagskrá um vampírur og aðrar myrkar verur í Bíó Paradís á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar í Reykjavík, fimmtudagskvöldið 7. febrúar 2013. Dagskráin hefst kl. 20:30 og henni lýkur með sýningu á kvikmyndinni Nosferatu.

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir bókmenntafræðingur og útvarpskona spjallar um furðusögur, höfundar lesa úr frumsömdum verkum sínum og einnig les Gerður Sif Ingvarsdóttir úr nýrri þýðingu sinni á skáldsögunni Drakúla eftir Bram Stoker. Höfundar sem lesa frumsamið efni eru Þorsteinn Mar sem les úr smásagnasafninu Myrkfælni, Jóhann Þórsson sem les úr ónefndri smásögu og Einar Leif Nielsen, en hann les úr nýútkominni skáldsögu sinni, Hvítir múrar borgarinnar.

Ljósmyndir sem hæfa efninu eftir Guðmund Óla Pálmason (öðru nafni Heldriver) verða á veggjum, en hann sýnir myndir úr seríunni Ghosts of Light. Þar gefur að líta útfrymi, líkamninga og aðrar kynjaverur. Auk þessa að leggja stund á ljósmyndun spilar Guðmundur Óli á trommur með hljómsveitinni Sólstafir.

Þegar bókmenntadagskránni lýkur verður hin fræga vampírumynd F.W. Murnaus frá 1922 um Orlok greifa, Nosferatu, sýnd í sal 2. Kvikmyndasýningin hefst kl. 22 og kostar ekkert inn.

Nosferatu er byggð á skáldsögu Stokers um Drakúla greifa, en nöfnum sögupersóna er þó breytt þar sem ekki náðust samningar um aðlögun bókarinnar. Orlok greifi er leikinn af Max Schreck og með önnur hlutverk fara m.a. Greta Schröder og Gustav von Wangenheim. Nosferatu er ein þekktasta mynd þýska expressjónismans og hér gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa þetta meistaraverk í sögu hrollvekjumynda á stóru tjaldi.

Dagskráin í Bíó Paradís er opin og aðgangur ókeypis, en vart þarf að taka fram að hún er ekki við hæfi barna.

Meðfylgjandi er ljósmynd eftir Guðmund Óla. Titill myndarinnar er „Brother spirit“.

468 ad

Submit a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>