Navigation Menu+

Flóttinn til skýjanna komin út

Posted on Apr 18, 2013 by in Fréttir | 0 comments

steampunk_matte_paint_by_mala2180-d50xw67

Flóttinn til skýjanna – fyrsta íslenska gufupönkssagan

Fyrsta skáldsaga Kristjáns Más Gunnarssonar segir frá ævintýralegum flótta, gufuvélum og sjóræningjum. Íslenskt gufupönk ryður sér til rúms.

Rómverska heimsveldið féll aldrei heldur óx og dafnaði. Flugskip svífa um himininn og landamæri veldisins þenjast út. Umsátursástand myndast  um borgina Bushehr sem hrindir af stað atburðum sem munu skekja stoðir veldisins.

Segir sagan frá Trinius, sem er rómverskur og endar sem strandaglópur í borginni þegar umsátrið hefst. Hann tekur höndum saman við Júlíu, skipstjóra sjóræningjaskipsins Ariadne. Saman hrinda þau af stað flóttaáætlun sem er bæði stórhættuleg og snarbrjáluð.

En þegar hið mögulega þrýtur, reynirðu hið ómögulega.

Flóttinn til skýjanna er fyrsta bók í Rómarþríleiknum, þar sem loftskipssjóræningjar og leynifélög berjast um völd og áhrif. Leyndarmál úr fortíð veldisins koma í ljós og munu móta framtíð þess.

Gufupönk er vaxandi bókmenntagrein, þar sem vísindaskáldskapur rennur saman við fantasíu. Eins og nafnið gefur til kynna má finna þar vélar knúnar áfram af gufu og ævintýralega atburði. Sem dæmi um gufupönk mætti nefna bókina The Anubis Gates eftir Tim Powers, teiknimyndasöguna League of Extraordinary Gentlemen og tölvuleikinn Bioshock.  

Sagan verður fáanleg í rafbókarformi í öllum helstu rafbókaverslunum landsins.

Kristjan_Mar_passiKristján Már Gunnarsson er fæddur á Akranesi 1988 og útskrifaðist frá Háskóla íslands Með B.A í Sagnfræði og B.A í ritlist 2012. Hann hefur skrifað smásögur og handrit frá því að hann man eftir sér og er staðráðinn í að gera það að ævistarfi sínu. Flóttinn til Skýjanna er fyrsta skáldsaga hans en eftir hann liggja sögur í nokkrum smásagnasöfnum.

Bókin eru gefin út af bókaútgáfunni Rúnatý, sem hyggst einbeita sér að ýmsum jaðarbókmenntum, s.s. hrollvekjum, fantasíum og vísindaskáldsögum.

468 ad

Submit a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>